» 5 hafa sagt sína skoðun
» 10 hafa sagt sína skoðun
Jæja gott fólk þá vil ég nú bara byrja á því að óska ykkur gleðilegs nýrs árs og þakka fyrir það gamla Ég vona nú ynnilega að þið hafið öll haft það sem allra best yfir hátíðarnar því ég hafði það bara gott þess á milli sem maður var að vinna
En vá tíminn flýgur áfram það er sko ekki hægt að segja neitt annað því það er sko kominn 13 janúar við erum að tala um það vá og ég er komin heilar 21 viku á morgun og maður er bara hálfnaður með meðgönguna sína Þetta er alveg ótrúlegt dæmi
En mér heilsast bara alveg þrusu vel þrátt fyrir aldur og fyrri störf Litla krílið er farið að láta vita af sér með smá spörkum og hreifingu og er það bara alveg ótrúlegt að finna fyrir einhverju kríli vera hreifa sig inní mér vá þetta er bara magnað. Ég fór í sónar 2 janúar en fékk nú samt ekki að vita kynið það er ekkert spennandi að vita hvað er í pakkanum þannig að ég ætla bara láta það koma mér á óvart
En ég ákvað nú að henda hér inn smá færlsu af okkur og leifa ykkur að fylgjast með þar sem ég er alltaf hauga löt að blogga en vonandi fer ég nú að vera betri í þessum blogg heimi.
Marta efað þú kíkjir hér inn þá vona ég þú sért að skemmta þér vel úti og að þér gangi bara vel því ég hef ekki trú á neinu öðru skal vera dugleg að leifa þér að fylgjast með okkur.
Við kveðjum í bili
» 8 hafa sagt sína skoðun
Gleðileg Jól öll sömul
» 3 hafa sagt sína skoðun
Góðan daginn fólks já það er sko ansi langt síðan maður hefur bloggað og er það vegna þess að tölvan mín er einhvað biluð og ég nenni aldrei í tölvuna niðrí kjallara
En það er nú bara gott að frétta af mér tel ég nú. Ég er búin að auka við mig vinnu uppá elliheimili og er hætt að vinna á morgnanna og er bara á kvöld og næturvöktum og það er bara alveg ágætt
Ég er jú enþá að gera neglur og alveg nóg að gera svona rétt fyrir jól
Það er löngu kominn jólafílingur í mig og er ég bara soldið svekkt yfir því að rigningin er að taka jólasnjóinn burt í þessum töluðu orðum...
Svo er það jú það stærsta og skemmtilega sem er að gerast í lífi mínu um þessar mundir og það er að ég er að fjölga mannkyninu einsog eflaust margir vita hér í bæ því þetta fréttist jú alltaf en það er nú einhver óléttu faraldur hér í Grindavíkinni því það eru endalaust margar óléttar um þessar mundir
En í dag er ég komin 16 vikur og vá hvað þetta líður alveg ótrúlega fljótt því mér finnst einsog ég hafi verið að uppgötva þetta í gær en það er víst ekki alveg þannig, tíminn er bara svo ógó fljótur að líða
Hér hef ég bara skilað alveg merkilegu bloggi og ég skal reina að láta ekki líða svona langt þangað til næst hehe en ég tel þetta bara vera orðið alveg ágætt í bili
Takk fyrir mig og hei þú kvittaðu nú fyrir komuna þína thanks
» 6 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá stendur tíminn í stað hjá manni... Það fer minnkandi auka vinnan uppá elliheimili en það er svo sem fínt að fá að hvílast einhvað en það sem er á döfinni hjá mér núna er að ég er að reinað vera samviskusöm og læra undir lokaprófin mín sem eru annaðkvöld
Þessar 7 vikur eru búnar að vera úper fljótar að líða og trúi ég því varla að ég sé að fara í prófin mín á morgun og svo tekur bara nýtt fag við í aðrar 7 vikur.
Það verða komin jól áður en maður veit af öss þetta er alveg svakalegt
Það er þetta skítaveður úti og maður reinir þá að hafa það notalegt inni í hlýju holunni sinni
Jæja best að glugga meira í bækurnar Later
Jæja þá er helgin og fótboltaballið liðið og er bara að koma enn önnur helgin öss þetta er alveg ferlegt hvað tímanum líður. Já mér finst ég vera nýbyrjuð í skólanum en svo eru bara að verða komnar 7 vikur og fer ég í lokaprófin mín á miðvikud 10.okt Ég var að velja í næstu lotu í kvöldskólanum í gær og ég ákvað að víst það eru nú að koma jól að fara bara í eitt fag núna og tek ég þá bara ensku en vill svo heppilega til að ég valdi hana var svo að ég gæti farið að mæta á dans æfingar með ykkur stelpur á miðvikud. kvöldum og ég er bara orðin spennt og hlakka mikið mikið til að byrja eftir prófin
Loksins loksin loksins hef ég látið verða að því að drullast til að finna dagsetningu fyrir nagla prófið mitt það er víst ekki nóg að tala bara um hlutina maður verður víst að framkvæma líka Ég fer í reykjavík og tek það 15.okt
Svo það er eitt og annað á döfinni hjá manni og er það bara ansi gott að hafa nóg að gera
En ég hef sko verið að velta einu vel fyrir mér því vinkona mín sagði við mig um daginn "hei Það sem drepur okkur ekki styrkir" Þessi setning hefur hljómað um í höfðinu á mér í alveg nokkra daga og vá takk fyrir þetta hint
Því þegar að ég lít í reinslubankann minn og allt það sem maður hefur fengið að upplifa bæði það góða og hið slæma er bara tilvísun um það að maður sé bara enn sterkari fyrir vikið og tilbúinn að takast á við já nánast hvað sem er
Þannig að þið hér sem lesið þetta blogg mitt vil ég bara þakka ykkur kærlega fyrir það sem þú hefur gert mér bæði efað það var alveg úper góð framkoma eða jafnvel alveg skelfileg framkoma við mig.
Það skiptir engu máli því þú kæri vinur hefur nú þegar hjálpað mér mikið og takk fyrir það
Kveðja úr himnaríki hehe
Jæja folks þá er að koma enn önnur helgin og er stefnan að sjálfsögðu að skella sér á fótboltaballið á morgun en ekki hvað Það eru allir orðnir svaka spenntir í kringum mann og maður er bara orðin drullu spenntur líka
Ætlar þú að láta sjá þig á fótboltaballinu???
» 1 hafa sagt sína skoðun
Jæja það er nú dáltið langt síðan maður skilaði einhverju smá bloggi hér inn...
En allavegana þá er bara búið að vera brjálað að gera í vinnunum og í skólanum en haldiði ekki bara að stelpan sé að meika það allavegana í stæ.
Núna verður maður bara rólegur þar sem maður er búin að kíkja út á lífið síðustu 2 helgar öss við fórum í innflutnings partý til Grétu og Ronalds uppá Keili á laugad. Það var svaka stuð og til hamingju með íbúðina ykkar Við stoppuðum nú samt ekkert lengi En við fórum aftur í grindó til Heiðu og sturtuðum enþá meira í okkur og vorum við vel fullar þegar okkur datt í hug að stinga af í bæinn... En það var svaka stuð og skemmti ég mér allavegana þrusu vel allavegana var drullu þunn á sunnud.
Óli bróðir, Ásdís og Máni minn kíktu heim á sunnud og heilsuðu uppá þunnu frænku
En svo er það bara fótbolta ballið 29.sept og bíða allir spenntir eftir því og viti menn að þetta er bara frí helgin mín og er maður nú þokkalega sáttur með það bara
Ég hef svosem ekki mikið meira að segja ykkur folks en betra en ekkert
LATER.
Jæja gott fólk öss hvað tíminn flýgur áfram þetta er barasta ekki fyndið sko
En ég ætla að koma með smá leiðréttingu hér á síðasta bloggi þar sem ég sagði að hún Ágústa okkar væri að fara til Noregs en hún er jú víst að fara til Svíðþjóðar hehe þetta er ég í hnotskurn smá misskilningur í bauninni á mér
En það var rosa stuð á menningar nótt hjá okkur skvísum fyrir utan það að ég var orðin ofurölvi og týndist niðrí bæ og var ein að labba að leita að elskunni minni honum Tóta Tussu (bílnum mínum) í meira en klukkutíma En fann hann fyrir rest og lagði mig þar í aftursætinu í smá tíma og svo fór ég bara heim til mín að sofa mér
En já ég er að rífa mig uppúr ógeðis pest og flensu En þetta er allt saman að koma held ég bara en djöfull er leiðinlegt að fá svona ógeð
Ég er byrjuð í kvöldskólanum og það er bara brjálað að gera hjá kellunni þessa dagana get nú ekki sagt annað en það er svosem fínt þá verður tíminn bara enþá fljótari að líða og hann er nú anskoti fljótur að líða það er eitt sem er satt
Ég ætla svo að skella mér á ljósanótt í kef verð líklegast hnakka skraut hjá honum föður mínum á hjólinu um daginn og svo verður dottið í það um kvöldið það er alveg á hreinu
Hlakka bara til það er ekki hægt að segja annað og jei það styttist óðum í mánaðamót og það er besti tíminn minn því þá er jú pay-day
Eitt að lokum hér, ætlar þú á ljósanótt í keflavíkinni???
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jæja gott fólk ég sótti um í kvöldskólanum í gær og sótti ég um í dönsku 102 og stærðfræði 202 Vonandi verður þetta nú kennt því ég er jú orðin alveg drullu spennt fyrir þessu því núna er líka búið að breyta fyrirlaginu á kvöldskólanum í kef og tek ég þá þessi fög fyrstu 7 vikurnar og svo próf og svo get ég valið mér önnur fög seinni 7 vikurnar þannig þetta verður í rauninni einsog 2 annir hjá mér á einni önn. Sem er bara gott því þá get ég tekið meira en ég bjóst við
En jæja núna er að bresta á helgi og er ég bara spennt fyrir henni því það er nóg að gera hjá mér Við erum að fara út að borða í kvöld við stelpurnar uppá Salthúsi og svo verður eflaust haldið í keflavíkina á trúbador stemningu En við erum nú ekki að hittast að ástæðu lausu því hún Ágústa okkar er að fara í eins árs afvötnun til Noregs sem aupair eða hvernig svo sem þetta er skrifað En henni verður sko sárt saknað hérna á klakanum það er sko alveg á hreinu Vonandi verður þetta ár bara fljótt að líða
Svo er það eins árs afmæli á morgun hjá henni Selmu Líf En vá hvað þetta ár var sjúklega fljótt að líða úff maður trúir þessu varla hvað tíminn flýgur áfram En ég hlakka bara til og tala nú ekki um það að fá að vera á myndavélinni í vinkonu afmælinu
En svo er það laugadagurinn og eftir vinnu verður leiðinni haldið í Reykjavík city á menninganótt með henni Mörtu og Elvu og hlakka ég alveg úúper mikið til því ég hef sko ekki oft tekið djamm í Reykjavíkinni já ég veit ég ætti að skammast mín fyrir það bwahahahha
Svo verður sunnudeginum eytt í þynnku heheh
En ætlar þú á menningarnótt???
bæjó
Jæja þá er það að skila af sér hér smá bloggi víst maður er búinn að vera svona duglegur þá þýðir nú ekkert að hætta því bara...
En versló helgin þá fór ég í Húsafell með Hrafnhildi G, Mörtu og Elvu og að sjálfsögðu voru kallarnir þeirra með nema við Marta vorum par um helgina og kúrðum okkur saman í fellihýsinu hjá Hrafnhildi og Gunna og höfðum við það bara cosy
En þessi helgi heppnaðist ekkert smá vel og voru fullt af Grindvíkingum þar og lukkaðist allt vel nema Stefán hennar Elvu datt á andlitið hehe
En hún Snæsa mín vann svo fyrir mig á mánud þannig ég gat verið 3 nætur og var það bara geggjað því ég var engan vegin tilbúin að fara heim á sunnud. En Kristín fór allavegana í eina útileigu í sumar og sé sko ekki eftir henni takk stelpur fyrir frábæra ferð
En núna er það bara vinna og vinna áfram og ætlar mín að skella sér í kvöldskólann já skítur skeður á hverju heimili á Íslandi en hver skeit í minn haus veit ég ekki alveg en ég þakka honum fyrir seinna
En ég tel þetta bara vera fínt í bili en annars bara skal ég reina vera dugleg að skila hér inn þegar ég gef mér tíma til að setjast fyrir framan tölvuna mína sem er lítið notuð þessa dagana eða bara frá því hún var keypt hehe
Later
Ég ruglaðist aðeins heiftalega hérna þegar ég sagði að ég væri að fara á Hvolsvöll með stelpunum en það er ekki alveg rétti staðurinn því við ætlum að fara á Hellu
Smá ruglingur hjá mér hehehe
En já ég er hér heima alveg drullu slöpp með kvef, hálsbólgu og hita
Vonandi verður maður bara orðin hress fyrir næstu helgi en annars endar maður bara einn hér heima í svekkelsinu og ég er ekkert alveg á þeim buxunum að nenna því
Vonum bara það besta en ég kveð ykkur í skítapestinni
Sæl og blessuð vá sumarið flýgur áfram og það fer að verða búið og ég hef ekki farið fet úr Grindavíkinni...
En Verslunarmanna helgin er núna plönuð og ætla ég að skella mér með stelpunum á Hvolfsvöll eða bara þangað þar sem góða veðrið verður og ég er nú bara assgoti ánægð með það þar sem maður er búinn að vinna allar helgar í júlí og þráir það sko alveg að komast aðeins héðan í burtu svo maður svekki sig nú ekki á því eftir þetta frábæra sumar að maður hafi ekki gert neitt og ekkert farið
Núna bíður maður bara spenntur og þyrstur eftir versló
En annars er nú bara allt gott að frétta af mér en ég hef svo sem ekkert gert nema vinna og kúra mér hér heima og haft það notalegt
En fólks takk fyrir að vera dugleg að kommenta hér hjá mér þetta fær mann til að vera duglegri að skila af sér smá bloggi af og til
» 7 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá þarf maður bara að vakna í fyrramálið í vinnuna og svo fær maður að sofa út allavegana á miðvikud og já það er sko alveg langþráð þessa dagana hjá manni
En í dag eftir vinnu fór ég með Snædísi og Selmu Líf í sund og skemmtum við okkur alveg konunglega vel þar sem Selma fór í kossa stuð og fengum við þessa löngu og tala nú ekki um slefblauta í leiðinni
Svo skellti maður sér í fótbolta með stelpunum af elliheimilinu og vá þar sem maður hefur nú ekki hreift sig af viti í fleiri, fleiri ár þá var þolið nú ekki gott en við skemmtum okkur nú samt alveg konunglega vel
En þar sem ég er algjörlega búin með orkuna mína þá ætla ég að fara halla mér og safna fyrir morgundaginn því það er jú alltaf nóg að gera hjá manni
Kveð í bili takk fyrir mig